Ég hef reynt að baka þessa köku nokkrum sinnum en að einhverjum ástæðum var hún alltaf aðeins of óbökuð. Í þetta skipið þá bara lét ég hana vera óvenjulega lengi í ofninum alveg 100 mínútur! Og hún var loksins fullkomin. Ég held að ég hafi aldrei bakað köku í svona langan tíma.

En já, þessi var fullkomin í sunnudagskaffið. Með næstum því nýja kökudiskinn minn sem ég keypti fyrir alveg heilar 100kr í Fjölsmiðjunni hérna á Akureyri. Mæli með að fara þangað til að kaupa hluti!
Þar sem ég lét ekki kökuna alveg kólna þá tók ég bara hliðarnar af kökuforminu af. Vildi ekki að hún myndi brotna í sundur.
Glútenfrí og vegan sítrónu og bláberjakaka
Lýsing
Skemmtileg sítrónu og bláberja kaka.
Innihald
Leiðbeiningar
- Bætið öllum þurrefnunum (hveiti, sykri og lyftidufti) í stóra hrærivélaskál og blandið þar til engir kekkir eru eftir.
- Bætið öllum blautefnunum (mjólk, olíu, sítrónusafa/-berki og vanillu) út í.
- Bætið helmingnum af bláberjunum út í og blandið varlega saman við.
- Hellið deiginu í 18 cm kökuform.
- Stráið afganginum af bláberjunum ofan á og þrýstið sumum þeirra varlega ofan í kökuna.
- Bakið kökuna í 90-100 mín á 180°C eða þar til þið getið stungið hníf í miðjuna og það er ekkert blautt deig á honum. Þar sem það eru notuð frosin bláber þá er hún bökuð í langan tíma.
- Leyfið kökunni að kólna að mestu í forminu og berið svo fram með smá flórsykri á til skrauts.
glútenfrítt, hveitilaust
