Ég elska tiramisu. ELSKA! Þannig mér fannst rosalega gaman að búa til vegan og glútenfrítt tiramisu. Á sama tíma var ég ekki alveg 100% ánægð, ég hefði átt að leyfa kökunni að vera lengur í kaffinu, og hefði átt að nota annarskonar mjöl, sem ég vissi alveg þar sem mér finnst þetta sem ég notaði ekki gott. En uppskriftin er góð, það er meira bara að ég er kannski ekki nógu góð. Eða bara ég sé of ströng á sjálfan mig þar sem að tiramisuið kláraðist alveg á nokkrum dögum.

Kremið er eitthvað sem ég ætla að fara að gera í margt margt annað, það var alveg svakalega gott. Botninn er líka góður, ég notaði sömu uppskrift og ég notaði í perutertuna og það heppnaðist mjög vel.
Einnig held ég að þetta sé með þeirri flóknari uppskrift sem ég hef sett hérna á bloggið. Það er samt ekkert erfitt að gera tiramisu, tekur bara aðeins lengri tíma en margt annað. En mikið af þeim tíma er í raun bara bið.
Vegan og Glútenfrítt Tiramisu
Lýsing
Vegan og glútenfrítt tiramisu.
Innihald
Kakan
Krem partur 1
Krem partur 2
Annað sem þarf
Leiðbeiningar
- Bakaðu svampbotninn og láttu kólna, skerið svo í ladyfingers bita.
- Settu sojamjólki, sykur, maíssterkju og vanilludropa í pott og hrærðu vel þar til blandan er kekkjalaus og slétt.
- Láttu suðuna koma upp við meðal-lágan hita á meðan þú þeytir stöðugt. Eldaðu í 3-4 mínútur þar til þú ert kominn með mjög þykkt vanillukrem.
- Taktu pottinn af hellunni. Settu kalt smjörið, skorið í teninga, í stóra skál og helltu heita vanillukreminu yfir. Hrærðu kröftuglega – í byrjun mun blandan virðast skilin en eftir nokkrar sekúndur munu hráefnin blandast saman og þú stendur eftir með ótrúlega slétt og glansandi vanillukrem.
- Settu kremið í ísskáp til að kæla alveg, í 30 mínútur til klukkustund.
- Með töfrasprota blandið saman vanillurkreminu (að ofan) og vegan mascarapone ostinum þar til að blandan er orðin kekkjalaus. Þetta tekur alveg dálítinn tíma!
- Bleytið svampbotnabitana í espresso, það tekur alveg dálítinn tíma fyrir kaffið að fara í kökubitana þannig ekki vera að drífa þig of mikið.
- Settu þunnt lag af mascarpone kreminu á botninn á 26×17 cm fati (eða svipuðu) og dreifðu úr því með skeið eða spaða. Raðaðu svampbotnabitunum hlið við hlið ofan á kremið.
- Til að fá sem jöfnust lög skaltu skipta afganginum af vegan mascarpone kreminu í tvennt. Notaðu spaða til að dreifa fyrri hlutanum varlega yfir svampbotnabitana og settu svo annað eins lag yfir.
- Dreifðu afganginum af mascarpone kreminu ofan á.
- Sigtið svo bökunarkakói ofan á efsta lagið af kreminu.
- Kældu tiramisu-ið í að minnsta kosti 4-6 klukkustundir (fyrir bestu niðurstöður – yfir nótt!) þar til það hefur stífnað.
