Ég elska ostakökur í krukkum. Í eldgamladaga þegar ég bjó í Genf var ég alltaf með frystinn fullan af svona krukkum til að borða þegar mér langaði í.
Við erum aðeins að taka til hjá okkur og þá fann ég jógúrtvélina mína frá ábyggilega 1980. Hún virkar ekki vel til að gera jógúrt en glerkrukkurnar sem voru partur af henni eru komnar í notkun hjá okkur.
Tveim var fórnað í uhh þvagsýni sem við þurftum snögglega að fara með í ræktun. Þetta var það eina sem var sterílt á heimilinu og með loki. Hjúkrunarfræðingurinn kippti sér ekkert upp við þetta og ég sagði henni að hún mætti bara henda krukkunum eftir ræktun. Þannig fækkaði allavegana krukkunum.
En já, vegan ostakökur! Nammi. Ég notaði hreinan kremást frá LiveFood, ásturinn (eða osturinn) sem ég pantaði þaðan er alveg svakalega góður.
Vegan Ostakökukrukkur með himberjagraut
Lýsing
Vegan og glútenfrí ostakaka í krukku með himberjagraut.
Innihald
Botn
Ostakakan
Himberjagrautur
Instructions
- Setjið hindber, sykur, vatn og sítrónusafa í lítinn pott.
- Látið sjóða upp á meðalhita og lækkið svo hitann. Leyfið þessu að malla rólega í um það bil 8–10 mínútur þar til sósan þykknar. Munið að hræra oft.
- Takið pottinn af hitanum og látið grautinn kólna.
- Brjótið kexið niður í mylsnu.
- Bætið við sykri (ef þið notið hann) og helli
- Hellið bræddu vegan smjöri yfir. Hrærið þar til mylsnan er blaut og líkist sandi.
- Setjið mylsnublönduna í botninn á hverri krukkunni.
- Þeytið rjómaostinn þar til hann er orðinn mjúkur og sléttur.
- Bætið við jógúrt, vanilludropum og sítrónusafa. Þeytið vel saman.
- Bætið flórsykri smám saman við og þeytið þar til fyllingin er orðin þykk og slétt.
- Bætið því í krukkurnar ofaná botninn.
- Setjið himberjagrautinn ofaná þegar hann hefur kólnað.
- Leyfið þessu að vera í ískáp í að minnsta kosti 30 mín áður en það er borðað. Betra ef það er yfir nótt.
