Það er alltaf jafn pirrandi (en samt ekki) þegar ég baka eitthvað til þess að muna að taka mynd og það heppnast ekki jafn vel og hin skiptin sem ég hef bakað sama hlutinn. Það er soldið sagan með þetta brauð með döðlum. Síðast þegar ég bakaði það hefaðist það miklu betur en í þetta skipti.
En það var jafn bragðgott. Mér finnst mjög gott að setja döðlur í brauð. Af einhverjum ástæðum átti ég 3 poka af döðlum sem voru allar að renna út. Núna er ég loksins búin að klára þá allar!
Ofnæmi eða ekki ofnæmi, þegar ég borða döðlur í miklu magni (eins og í döðlugotti) þá fæ ég hausverk. Ekki mígreni sem ég fæ við mörgu, heldur bara einfaldann hausverk. Mjög spes.
En já, brauðið var gott. Borðuðum það með afgangs súpu.
Glútenfrítt brauð með döðlum
Innihald
Leiðbeiningar
- Blandið saman heitu vatni, husk og smáttskornum döðlum. Og leyfið að standa.
- Setjið kartöflusterkju, hrísgrjónahveitið, höfrunum og hrærið vel.
- Þegar degið er orðið volgt bætið við gerinu.
- Saltið.
- Hrærið þar til engir kekki eru í deginu. Kartöflusterkjan á það til að kekkjast.
- Hitið ofninn í 50°C
- Setjið brauðið í brauðformið (best er að meðhöndla degið með blautar hendu)
- Stráið kanilsykrinum yfir.
- Setjið brauðið í volgan ofninn og slökkvið á hitanum.
- Leyfið brauðinu að hefjast í 30-40 mín
- Hitið ofninn í 200°C og setjið smá vatn í botninn.
- Bakið bollurnar í 45-55 mín eða þar til það er fullbakað
